Það er alveg ótrúlegt hvað tækninni fleytir fram og það nú í bréfdúfum. Fyrir nokkrum árum bjó ég í Namibíu og þurfti að senda hlut í viðgerð. Í póst var lítil myndavél send til Suður-Afríku og komst hún þangað á þremur dögum. Eftir viðgerð var hún send með pósti til mín aftur. Nú brá svo við að hún var 54 daga á leiðinni til baka. Þá hefði ég vilja hafa svona eina af þessum hraðskreiðu bréfdúfum.
![]() |
Dúfan var fljótari en tölvupósturinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 10.9.2009 | 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)